Bakgrunnur og innblástur
Ég starfa jöfnum höndum við kennslu og á verkstæðinu mínu. Í grunninn er ég kennaramenntuð með áherslu á textílmennt og sögu. Ég held að það sé ekki laust við að það sem ég er að gera í dag beri það með sér. Hlutirnir mínir hafa oft sögulega og þjóðlega skírskotun.
Hugmyndir koma til mín alls staðar að, úr umhverfinu, blöðum, bókum, tísku og frá fólki í kringum mig. Nemendurnir mínir eru líka oft mjög gefandi í sinni frjálsu tjáningu og einlægu gleði.
Sem keramiker hef ég sérhæft mig í steyptum formum og endurvinnslu á gleri. Ég nota gamlar flöskur og færi í nýjan búning. Ég sandblæs floskurnar og móta í þær tappa eða set á þær einhverskonar viðbót.
Rennur er hönnunarlína sem ég hef verið að þróa undanfarin ár. Formin sæki ég í þakrennur og niðurföll. Línan samanstendur af bollum, litlum ílátum, kertastjökum og vegg/borð vösum í ýmsum stærðum og gerðum.